Taktu við bókunum beint.
Þín eigin bókunarsíða. Gestir greiða beint inn á þinn reikning og dagatalið er í takt við Airbnb og Booking.com. Þú heldur öllu verðinu.
Fyrir heimagistingu, sumarhús, íbúðir og gistiheimili.
Sumarhús í Borgarfirði
Borgarfjörður · 6 gestir
desember2026
| mán | þri | mið | fim | fös | lau | sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
3 nætur · 10.–13. des. 2026
- 3 nætur · Samtals
- 155.000 kr.
- Tekið af bókuninni
- 0 kr.
- Þú færð
- 155.000 kr.
100% til þín
Gestur tekur ekkert af bókunum. Þú greiðir fast mánaðargjald.
Beint inn á þinn reikning
Gestir greiða með korti í gegnum Teya eða Straum, á þínum eigin samningi.
Eitt dagatal
Við sækjum dagatölin frá Airbnb og Booking.com á 10 mínútna fresti og lokum þeim nóttum á síðunni þinni.
Hvað heldur þú eftir af bókuninni?
Dragðu sleðann og sjáðu muninn á einni bókun.
Í gegnum bókunarsíðu
Þú heldur eftir153.000 kr.
Gjald 27.000 kr.
Beint með Gestur
Þú heldur eftir180.000 kr.
Ekkert tekið af bókuninni
27.000 kr. meira í þinn vasa
Dæmið sýnir aðeins gjald bókunarsíðunnar. Kortagjöld færsluhirðis og mánaðargjald Gestur eru ekki talin með.
Komin í loftið á nokkrum mínútum
Síðan þín tekur við bókunarbeiðnum um leið og þú birtir hana.
Settu inn eignina
Myndir, lýsing, verð og reglur. Við leiðum þig í gegnum það, skref fyrir skref.
Tengdu dagatölin
Límdu inn dagatalshlekkina frá Airbnb og Booking.com og settu okkar hlekk inn þar.
Deildu síðunni
Settu „Bóka“ hnapp á vefsíðuna þína eða sendu hlekkinn beint til gesta.
Kortagreiðslur bætast við þegar Teya eða Straumur hefur staðfest aðganginn þinn.
Bókunarsíða sem byrjar á dagatalinu
Gestir sjá lausar nætur og verð hverrar nætur strax, á íslensku eða ensku. Með þínu merki og þínum lit, og hún virkar jafn vel í símanum.
Þú ræður hvernig er bókað
Leyfðu gestum að bóka strax, eða farðu yfir hverja beiðni og samþykktu eða hafnaðu henni. Þú getur skipt um hvenær sem er.
Peningarnir fara beint til þín
Gestir greiða með korti á greiðslusíðu Teya eða Straums, á þínum samningi. Gestur snertir aldrei greiðsluna. Staðfestingargjald og eftirstöðvar, endurgreiðslur og afbókunarreglur eru innbyggð.
Í takt við Airbnb og Booking.com
Við sækjum dagatölin þín á 10 mínútna fresti. Airbnb les dagatalið þitt á um 3 klukkustunda fresti og Booking.com á um 2 klukkustunda fresti. Ef bókanir rekast á sérðu það í stjórnborðinu.
Bókhaldið fylgir með
Reikningar, kvittanir og kreditreikningar á þínu nafni, með VSK þegar við á. Fyrir heimagistingu fylgjumst við með 90 nátta og 2 milljóna króna mörkunum.
Einfalt verð
Fast mánaðargjald fyrir hverja eign. Ekkert tekið af bókunum.
- Ekkert hlutfall af sölunni, sama hve mikið þú selur
- Kortagjöld greiðir þú færsluhirðinum þínum, eins og áður
- Allt innifalið: bókunarsíða, dagatöl, greiðslur og reikningar
Verð verður kynnt við opnun. Sæktu um aðgang og vertu með frá byrjun.
Spurt og svarað
Þarf ég að vera hjá Teya eða Straumi?
Til að taka við kortagreiðslum, já: þú tengir þinn eigin samning um netgreiðslur. Án hans getur síðan samt tekið við bókunarbeiðnum.
Hver geymir peningana?
Enginn nema þú. Gestir greiða beint inn á þinn samning hjá færsluhirðinum og Gestur kemur hvergi nálægt greiðslunni.
Get ég áfram verið á Airbnb og Booking.com?
Já. Gestur vinnur með þeim: dagatölin samstillast í báðar áttir, svo þú getur tekið við beinum bókunum samhliða.
Þurfa gestir að búa til aðgang?
Nei. Gestir velja dagsetningar, skrá nafn og netfang og greiða. Þeir fá hlekk til að skoða eða afbóka bókunina.
Get ég farið yfir hverja bókun áður en hún er staðfest?
Já. Þú velur hvort gestir bóka strax eða senda beiðni sem þú samþykkir eða hafnar, og getur skipt um hvenær sem er.
Virkar þetta fyrir heimagistingu?
Já. Þú skráir skráningarnúmerið þitt og við höldum utan um nætur og tekjur ársins miðað við mörk heimagistingar.
Hvað gerist ef sama nóttin bókast á tveimur stöðum?
Við látum þig vita í stjórnborðinu um leið og við sjáum það, svo þú getir leyst málið áður en gesturinn mætir.
Hvenær get ég byrjað?
Við opnum fyrir gestgjafa í áföngum. Sæktu um aðgang og við höfum samband.
Sæktu um aðgang
Við opnum fyrir gestgjafa í áföngum. Segðu okkur aðeins frá eigninni og við höfum samband.